Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 10. maí 2023 13:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bestur í 3. deild - Þetta er svo geggjuð týpa
Vilhjálmur Jónsson (Árbær)
Vilhjálmur Jónsson.
Vilhjálmur Jónsson.
Mynd: Árbær - Instagram
Vilhjálmur Jónsson, varnarmaður Árbæjar, er leikmaður 1. umferðar í 3. deild. Hann átti mjög svo flottan leik þegar Árbær vann 3-1 sigur á Ými í fyrsta leik.

Ýmir komst yfir í leiknum en Vilhjálmur skoraði tvisvar fyrir hálfleik og kom sínum mönnum í forystu áður en flautað var til leikhlés.

„Eftir 40 mínútur kemur Villi og segir: 'Hingað og ekki lengra. Ef þið getið ekki skorað þarna frammi, þá græja ég þetta bara'. Hann skorar tvö mörk eftir föst leikatriði og græjar þetta bara," sagði Gylfa Tryggvason, þjálfari Árbæjar, í Ástríðunni.

„Hann er geggjaður, þetta er svo geggjuð týpa," bætti Gylfi við þegar rætt var um Vilhjálm en næsta umferð í 3. deild hefst á föstudaginn.

Hlustendur Ástríðunnar fá 15 prósent afslátt hjá Unbroken með kóðanum "ástríðan".

Hægt er að hlusta á Ástríðuna hér að neðan og í öllum hlaðvarpsveitum.
Ástríðan - 1. umferð - Augnablik og Reynir unnu toppslagi, KFA með statement
Athugasemdir
banner