Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   sun 10. maí 2026 17:33
Ívan Guðjón Baldursson
England: Arsenal rétt marði West Ham
Mynd: EPA
Mynd: EPA
West Ham 0 - 1 Arsenal
0-1 Leandro Trossard ('83)

West Ham United og Arsenal áttust við í gríðarlega mikilvægum slag í ensku úrvalsdeildinni í dag. Heimamenn í West Ham eru í bullandi fallhættu á meðan Arsenal er við bílstjórasætið í afar spennandi titilbaráttu.

Arsenal var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik en náði ekki að koma boltanum í netið. Varnarmenn West Ham köstuðu sér fyrir marktilraunir gestanna og björguðu nokkrum sinnum á síðustu stundu.

David Raya átti góða vörslu í fyrri hálfleik og hélt stöðunni svo markalausri í þeim síðari. Seinni hálfleikurinn var talsvert jafnari en sá fyrri og fengu heimamenn frábært marktækifæri áður en Leandro Trossard kom boltanum í netið á 83. mínútu eftir frábæran undirbúning frá Martin Ödegaard.

Trossard fann skotleið framhjá þéttum varnarpakka Hamranna, en boltinn hafði þó viðkomu í varnarmanni áður en hann endaði í netinu.

Hamrarnir leituðu að jöfnunarmarki í uppbótartíma og komst Callum Wilson nálægt því að skora, en Gabriel Magalhaes náði að setja löppina fyrir og bjarga í hornspyrnu. West Ham skoraði eftir hornið en markið ekki dæmt gilt eftir langa athugun í VAR-herberginu útaf því að Pablo braut nokkuð augljóslega á Raya.

Lokatölur urðu því 0-1 og er Arsenal aðeins tveimur sigrum frá því að tryggja sér langþráðan Englandsmeistaratitil. Lærlingar Mikel Arteta taka á móti föllnu liði Burnley næst áður en þeir heimsækja Crystal Palace í nágrannaslag í lokaumferðinni.

West Ham er einu stigi frá öruggu sæti í úrvalsdeildinni en Tottenham er næsta lið fyrir ofan. Spurs, sem á leik til góða, tekur á móti Leeds United annað kvöld og getur farið langleiðina með að bjarga sér frá falli með sigri þar.
Slapp
banner