Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
   sun 10. maí 2026 22:41
Ívan Guðjón Baldursson
Jón Óli: Þurfum að finna einhvern til að nudda á henni rassgatið
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Ólafur Daníelsson var kátur eftir sigur ÍBV á heimavelli gegn Þór/KA í dag en nýliðarnir frá Vestmannaeyjum eru óvænt með fullt hús stiga eftir fjórar fyrstu umferðir tímabilsins í Bestu deildinni.

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  0 Þór/KA

ÍBV vann 2-0 eftir nokkuð jafnan leik og segir Jón Óli að markmiðið sé að berjast um þrjú efstu sæti deildarinnar.

„Ég finn fyrir miklu þakklæti til leikmanna hvernig þeir spiluðu leikinn og héldu skipulagi af mikilli fagmennsku. Ég var reyndar mjög ósáttur með fyrstu 20 mínúturnar þegar sóknarmennirnir mínir brenndu af hverju færinu fætur öðru og mér fannst þær bara ekki vera að bera virðingu fyrir marktækifærunum. Þær héldu örugglega að þetta yrði svona partý allan leikinn en við vitum öll að það er ekki þannig. Ég var bara að bíða eftir að fá mark í bakið en sem betur fer gerðist það ekki í dag," sagði Jón Óli eftir lokaflautið. „Það var hálffyndið að það voru svo Akureyringarnir sem skoruðu fyrsta markið fyrir okkur.

„Þetta kemur mér þónokkuð á óvart útaf því að við höfum verið án Helenar Heklu og Fridrikku. Með fullmannað byrjunarlið ætla ég að berjast um þrjú efstu sætin en þetta hefur gengið ótrúlega og þessar ungu stúlkur sem koma inn eru virkilega að vinna vinnuna sína."


Jón Óli staðfestir að Fridrikka Marie Clementsen verður frá í 6-12 vikur og mun því snúa aftur á völlinn seinna í sumar ef bataferlið gengur að óskum.

Þá fór Allison Grace Lowrey meidd af velli í sigrinum gegn Þór/KA en hún er búin að skora fjögur mörk í fjórum fyrstu umferðum tímabilsins.

„Framherjinn okkar (Allison) á það til að stífna eitthvað upp aftan í læri og upp í rassgat og ég eiginlega veit ekki hvað skal segja, við þurfum að finna einhvern til að nudda á henni rassgatið til að fá hana í lag. Það er einhver stífleiki sem gerir vart við sig hjá henni, yfirleitt er það eftir kannski 70 mínútna leik en það gerðist snemma í dag."
Slapp
banner