Fótbolti.net hefur verið að rifja upp liðin heimsmeistaramót og þannig talið niður í HM 2016. Leikmennirnir, sigurvegararnir, heimalandið, eftirminnilegir atburðir og fleira í brennidepli.
Fótbolti.net mun að sjálfsögðu fjalla ítarlega um HM sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada og hefst á morgun.
Fótbolti.net mun að sjálfsögðu fjalla ítarlega um HM sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada og hefst á morgun.
HM í Katar 2022
Það var gríðarlega umdeilt þegar olíuríkið Katar fékk að halda HM, af ýmsum ástæðum. Valið var harðlega gagnrýnt af ýmsum mannréttindasamtökum, meðal annars vegna aðbúnaðar verkafólks, og þá þótti það sérstakt þar sem landið er mjög fámennt og lágt skrifað í fótboltanum.
Það þurfti að reisa nánast alla leikvanga frá grunni og kostnaður við mótið var gríðarlegur. FIFA hlustaði ekki á ítrekaðar kröfur um að ákvörðunin yrði endurskoðuð og ákall um sniðgöngu skilaði ekki árangri.
Þegar á hólminn var komið var þetta fyrsta heimsmeistaramót í Mið-Austurlöndum óhemju vel heppnað. Það var haldið að vetrarlagi vegna þess gríðarlega hita sem er í Katar yfir sumarmánuðina. Mótið var stórskemmtilegt, uppfullt af flottum tilþrifum, óvæntum úrslitum og ógleymanlegum augnablikum.
Mömmustrákarnir frá Marokkó
Marokkó kom öllum á óvart á mótinu. Liðið skákaði Króatíu og Belgíu og vann sinn riðil. Liðið sló svo út Spán og Portúgal í útsláttarkeppninni en mætti ofjörlum sínum í undanúrslitum þar sem Frakkland vann 2-0 sigur.
Mæður leikmanna spútnikliðs Marokkó urðu einnig stjörnur í Katar. Mömmurnar voru leikmönnum innan handar á mótinu og komu reglulega á liðshótelið. Þær tóku svo virkan þátt í fögnuði leikmanna á vellinum eftir sigurleiki.
Sádi-Arabía vann Argentínu
Ein óvæntustu úrslit í sögu HM urðu í fyrstu umferð riðlakeppninnar þegar Argentína tapaði gegn Sádi-Arabíu 1-2. Flestir bjuggust við auðveldu verki fyrir Argentínu þegar Lionel Messi skoraði úr vítaspyrnu eftir tíu mínútna leik en Sádi-Arabía náði að snúa stöðunni sér í vil með mörkum Saleh Al-Shehri og Salem Al-Dawsari.
Margar hökur fóru í gólfið en Argentína átti þó eftir að rísa upp eins og fuglinn Fönix. Liðið vann hina tvo leiki sína í riðlinum og sló síðan út Ástralíu, Holland og Króatíu á leið sinni í úrslitaleikinn.
Heimsmeistararnir komust ekki upp úr riðli sínum
Heimsmeistarar Þýskalands voru gríðarleg vonbrigði. Eftir að hafa leitt gegn Japan í fyrsta leik sínum á mótinu skoraði japanska liðið tvö mörk og fagnaði 2-1 sigri. Þessi úrslit urðu Þýskalandi að falli, jafntefli gegn Spáni og sigur gegn Kosta Ríka nægðu ekki til að komast upp úr riðlinum og liðið fór með skottið á milli lappanna upp í flugvél.
Fyrsta konan dæmdi
Hin franska Stéphanie Frappart braut blað í sögunni með því að vera fyrsta konan til að dæma á HM í karlaflokki. Hún dæmdi leik Kosta Ríka og Þýskalands.
Króatía sendi Brasilíu heim
Í 8-liða úrslitum mættust Króatía og Brasilía. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma, Neymar kom Brasilíu yfir í framlengingu en á 117. mínútu jafnaði Bruno Petkovic og kom leiknum í vítakeppni. Króatía vann í vítakeppninni 4-2 og sendi Brassana heim.
Ronaldo grét
Eftir 1-0 tap Portúgals gegn Marokkó í 8-liða úrslitunum gekk Cristiano Ronaldo einn í gegnum göngin og tár streymdu niður kinnarnar. Hann var niðurbrotinn eftir að HM draumurinn var horfinn. Á þessum tíma var talið líklegt að þarna hefði síðasta tækifæri hans til að vinna HM horfið.
Úrslitaleikur: Argentína 3 - 3 Frakkland, eftir framlengingu (Vítakeppni: 4-2)
1-0 Lionel Messi ('23 , víti)
2-0 Angel Di Maria ('36 )
2-1 Kylian Mbappe ('80 , víti)
2-2 Kylian Mbappe ('81 )
3-2 Lionel Messi ('109 )
3-3 Kylian Mbappe ('117 , víti)
Vítakeppnin:
3-4 Kylian Mbappe
4-4 Lionel Messi
4-4 Kingsley Coman (misnotað víti)
5-4 Paulo Dybala
5-4 Aurélien Tchouaméni (misnotað víti)
6-4 Leandro Paredes
6-5 Randal Kolo Muani
7-5 Gonzalo Montiel
Frábæru móti lauk með rosalegum úrslitaleik sem var flugeldasýning frá upphafi til enda. Argentína varð heimsmeistari eftir sigur á Frakklandi á Lusail-vellinum. Þetta var fyrsti heimsmeistaratitill þjóðarinnar síðan 1986 og var þetta þriðji titillinn frá upphafi mótsins. Staðan var 3-3 eftir framlengingu en Argentína skoraði úr öllum spyrnum sínum í vítakeppninni og vann hana 4-2.
18.12.2022 18:04
Argentína heimsmeistari eftir rosalegasta úrslitaleik í sögu HM
Leikmaðurinn: Lionel Messi
Af mörgum talinn besti fótboltamaður sögunnar náði þarna í krúnudjásnið sem allir voru að bíða eftir að hann myndi ná. Messi var frábær á mótinu og skoraði sjö mörk. Hann var klæddur í einhverskonar skikkju þegar hann tók við HM-bikarnum. Skikkjan sem Messi klæddist nefnist Bisht, er fínn klæðnaður í arabalöndum og er notaður við sérstök tilefni og merkir upphefð, en hann er oft tengdur við kóngafólk og auðlegð.
Markahrókurinn: Kylian Mbappe
Kylian Mbappe var markakóngur HM með átta mörk. Hann skoraði þrennu fyrir Frakka í úrslitaleiknum en það skilaði aðeins silfurverðlaunum. Hann var annar leikmaðurinn til að skora þrennu í úrslitaleik HM, á eftir Geoff Hurst 1966.
Úrvalslið mótsins:
Yassine Bounou (m) (Marokkó); Achraf Hakimi (Marokkó), Marquinhos (Brasilía), Josko Gvardiol (Króatía), Theo Hernandez (Frakkland); Sofyan Amrabat (Marokkó), Enzo Fernandez (Argentína), Jude Bellingham (England); Lionel Messi (Argentína), Julian Alvarez (Argentína), Kylian Mbappe (Frakkland)
Leikvangurinn: Lusail leikvangurinn
Einn af átta leikvöngum sem voru byggðir frá grunni fyrir HM 2022. Hann er staðsettur um 20 kílómetrum norðan við höfuðborgina Doha. Leikvangurinn er svo sannarlega mögnuð hönnun og smíði. Hönnunin endurspeglar handsmíðaðar skálar sem finnast um allan arabíuska. Leikvangurinn er gullhúðaður en með tímanum mun gullliturinn dofna.
Besti úrslitaleikur sögunnar?
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!





