Fotbolti.net
10.07.13 - 16:15
Brynjar Ingi Erluson

EM kvenna - Siggi Raggi: Stríð og barátta

Auglýsing
<b>EM kvenna - </b>Siggi Raggi: Stríð og barátta
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, segir að leikurinn gegn Norðmönnum á morgun verði stríð og barátta.
,,Þetta verður stríð og barátta. Tvö álík lið sem hafa skipst á að vinna hvort annað undanfarin ár, spila keimlíkan fótbolta, líkamlega sterkir leikmenn, aggresívir og nokkrar reynslumiklar, en líka blanda af ungum og efnilegum leikmönnum sem eru góðar,\" sagði Siggi Raggi.

,,Það eru tveir 17 eða 18 ára leikmenn, fæddar 1995, sem spila í senternum og á kantinum sem hafa verið að skora mörkin fyrir þær. Við þurfum að passa þær vel, en ég held að það skipti miklu máli hvaða lið skorar fyrsta markið og þetta er leikur sem við verðum að vinna, minnsta kosti að ná jafntefli upp á framhaldið.\"

,,Það er mikil eftirvænting og spenna í hópnum og gaman að fá tækifæri að taka þátt í þessu og vera í hópnum, en auðvitað vilja þær allar spila og byrja inná og við munum sennilega ekki spila á sama byrjunarliðinu allt mótið. Það er stutt á milli leikja og við eigum meiri breidd en áður og það getur verið að ég róteri því eitthvað.\"

,,Það eru búin að vera smá meiðsli í hópnum sem við þurfum að hafa bakvið eyrað, við eigum þrjár skiptingar í leiknum sem er öðruvísi en í vináttuleik þar sem maður á sex, þannig við þurfum aðeins að pæla í því,\"
sagði Siggi Raggi ennfremur.

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.