Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, vonast til að Paul Pogba miðjumaður Manchester United gangi til liðs við félagið í framtíðinni.
Pogba hefur verið ítrekað orðaður við Real Madrid en Manchester United hafnaði tilboði frá spænska félaginu í sumar.
Pogba hefur verið ítrekað orðaður við Real Madrid en Manchester United hafnaði tilboði frá spænska félaginu í sumar.
Pogba hefur sjálfur gefið í skyn að hann sé tilbúinn að fara frá Manchester United og Ramos vill fá hann til Real.
„Ég held að Real Madrid hafi dyrnar alltaf opnar fyrir góða leikmenn eins og hann," sagði Ramos.
„Að mínu mati er Pogba einn af bestu leikmönnunum."
Athugasemdir