21.08.26 - 17:13
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton hafnaði 60 milljónum frá Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool er í leit að nýjum kantmönnum og er Yankuba Minteh efstur á óskalistanum í dag, en Brighton vill ekki selja leikmanninn.

TENGT EFNI
Brighton hafnaði 50 milljóna punda tilboði Liverpool
Greint var frá því í gær þegar Brighton hafnaði 50 milljónum punda frá Liverpool en stórveldið var ekki lengi að bæta tilboðið um 10 milljónir til viðbótar.
Stjórnendur Brighton svöruðu því fljótt og aftur sögðu þeir nei. Talið er að félagið sé ekki reiðubúið til að selja Minteh fyrir minna en 70 til 80 milljónir.
Minteh er 22 ára og er með þrjú ár eftir af samningi. Hann leikur sem hægri kantmaður að upplagi og getur einnig spilað vinstra megin.
Hann kom með beinum hætti að 7 mörkum í 34 úrvalsdeildarleikjum á síðustu leiktíð og á 7 mörk í 20 landsleikjum fyrir Gambíu.
Fabrizio Romano segir að Minteh sé búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningi hjá Liverpool.
Liverpool er enn að reyna að kaupa Bradley Barcola úr röðum PSG.

Telur mjög líklegt að Minteh fari til Liverpool

Mynd: EPA