Fotbolti.net
21.08.26 - 16:30
Brynjar Ingi Erluson

Öðru tilboði sænska stórliðsins í stjörnu ensku utandeildarinnar hafnað

Öðru tilboði sænska stórliðsins í stjörnu ensku utandeildarinnar hafnað
Canon

Mynd: Boreham Wood

Enska utandeildarfélagið Boreham Wood hefur hafnað öðru tilboði sænska stórliðsins Djurgården í enska vængmanninn Abdul Abdulmalik.
Boreham Wood hefur hafnað nokkrum tilboðum í þennan 23 ára gamla leikmann.

Fyrr í mánuðinum hafnaði félagið milljón punda tilboði Djurgården í Abdulmalik. Nú hefur það einnig hafnað öðru tilboði sænska félagsins upp á um 1,5 milljónir punda.

Abdulmalik, sem var áður á mála hjá Millwall, var einn besti leikmaður ensku utandeildarinnar á síðustu leiktíð og hjálpaði Boreham Wood að komast í úrslitaleik um sæti í D-deildinni.

Hann skoraði og lagði upp mark gegn Rochdale í úrslitaleiknum en það dugði ekki til sigurs.

Abdulmalik var valinn besti ungi leikmaður tímabilsins í utandeildinni eftir að hafa skorað sautján mörk og lagt upp önnur tíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.