21.08.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Nýr miðvörður Burnley kynntur með stiklu úr þekktri bíómynd

Mynd: Burnley

Mynd: Burnley
Bosníski varnarmaðurinn Anel Ahmedhodzic er kominn til Burnley frá hollenska félaginu Feyenoord.
Ahmedhodzic er 27 ára gamall miðvörður sem er fæddur og uppalinn í Svíþjóð. Hann lék einn A-landsleik fyrir Svía áður en hann ákvað að spila fyrir Bosníu.
Hann fór ungur frá Malmö til Nottingham Forest en sneri aftur til sænska félagsins árið 2019. Þar lék hann í þrjú ár áður en Sheffield United keypti hann.
Ahmedhodzic hjálpaði Sheffield United að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni en yfirgaf félagið á síðasta ári og gekk til liðs við Feyenoord.
Nú er hann kominn til Englands í þriðja sinn og hefur samið við Burnley. Félagið greiðir sex milljónir punda fyrir hann og skrifaði miðvörðurinn undir fjögurra ára samning.
Sheffield United vildi fá hann aftur í sumar og Southampton sýndi honum einnig áhuga. Ahmedhodzic valdi hins vegar Burnley sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor.
Burnley er þekkt fyrir skemmtileg kynningarmyndbönd og að þessu sinni notaði félagið atriði úr The Addams Family. Afraksturinn má sjá hér fyrir neðan.

He’s at the door! ???? pic.twitter.com/eXWkYxrS0p
— Burnley FC (@BurnleyOfficial) August 20, 2026