Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 10. september 2021 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Ætlum ekki að tilkynna neitt fyrr en eftir að tímabilinu lýkur"
Alex Freyr
Alex Freyr
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á dögunum sagði Hrafnkell Freyr Ágústsson frá því á Twitter að samkomulag væri í höfn milli Víkings og Alex Freys Elíssonar, leikmanns Fram.

Alex er samkvæmt því á leiðinni til Víkings eftir tímabilið. Alex er hægri bakvörður sem er að renna út á samningi hjá Fram.

Sjá einnig:
Segir að Alex Freyr sé búinn að semja við Víking (3. sept)

Fótbolti.net ræddi við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkings, í dag og var spurt út í Alex. Geturu staðfest að Alex er að koma til Víkings?

„Við erum búnir að vera í viðræðum við hann undanfarna mánuði eftir að það mátti byrja ræða við hann. Samningurinn hans rennur út í október."

„Við erum að vinna hörðum höndum í því að fá hann yfir en við ætlum ekki að tilkynna neitt fyrr en eftir að tímabilinu lýkur."

Athugasemdir
banner
banner
banner