Fotbolti.net
10.09.26 - 18:48
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeildin: Greenwood lagði upp jöfnunarmarkið

Archie Brown fagnar marki sínu gegn Roma

Archie Brown fagnar marki sínu gegn Roma

Canon

Mynd: EPA

Fyrstu tveimur leikjum dagsins í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu lauk báðum með 1-1 jafntefli.
PSV Eindhoven og Shakhtar skildu jöfn, 1-1, á Philips-leikvanginum í Eindhoven.

Gestirnir frá Úkraínu komust yfir undir lok fyrri hálfleiks eftir að Sergino Dest tapaði einvígi á miðsvæðinu. Boltinn barst út til Gleiker Mendoza á vinstri kantinum og hann keyrði inn í teiginn áður en hann skoraði með laglegu skoti í hægra hornið.

PSV-menn vildu fá aukaspyrnu í einvíginu við Dest en lítið virtist vera í því og markið stóð.

Dest bætti fyrir mistökin með jöfnunarmarki í upphafi síðari hálfleiks. Armando Obispo sendi boltann inn í teiginn frá vinstri og Dest kom á ferðinni og smellti honum út við hægri stöngina.

Shakhtar var líklegra til að knýja fram sigur undir lokin en tókst ekki að finna sigurmarkið.

Á sama tíma gerðu Fenerbahce og Roma einnig 1-1 jafntefli í Istanbúl.

Fenerbahce ógnaði snemma leiks en Mile Svilar var öruggur í marki Roma. Gestirnir sóttu síðan í sig veðrið og Paulo Dybala átti gott skot sem Ederson varði áður en Bryan Cristante kom þeim yfir á 39. mínútu. Miðjumaðurinn fékk boltann fyrir utan teig og klíndi honum út við vinstri stöngina.

Heimamenn jöfnuðu snemma í síðari hálfleik þegar Mason Greenwood kom boltanum á Archie Brown sem skoraði. Þeir héldu áfram að sækja og Svilar varði frábærlega frá Vedat Muriqi.

Fenerbahce var nær sigrinum undir lokin. Devyne Rensch komst fyrir skot frá Oguz Aydin og Nathan Ake skallaði í slána en herslumuninn vantaði hjá heimamönnum og liðin skiptu með sér stigunum.

PSV 1 - 1 Shakhtar D
0-1 Gleiker Mendoza ('45 )
1-1 Sergino Dest ('48 )

Fenerbahce 1 - 1 Roma
0-1 Bryan Cristante ('39 )
1-1 Archie Brown ('48 )
Sergino Dest bjargaði stigi fyrir PSV

Sergino Dest bjargaði stigi fyrir PSV

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.