Fotbolti.net
10.09.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Tekur upp hanskann fyrir Alvarez - „Við erum allir orðnir dauðþreyttir á þessu“

Julian Alvarez

Julian Alvarez

Canon

Mynd: EPA

Koke, fyrirliði Atlético Madríd, hefur tekið upp hanskann fyrir Argentínumanninn Julian Alvarez og biður fólk að láta hann í friði.
Alvarez vildi yfirgefa Atlético í sumar og hafði hugann við Barcelona.

Börsungar settu hins vegar strik í reikninginn með því að ræða áhugann opinberlega. Það kom Alvarez úr jafnvægi og hann reyndi að þrýsta á Atlético að selja sig.

Framherjinn lýsti því yfir að hann vildi fara en Atlético neitaði að selja hann til Barcelona. Félagið var tilbúið að ræða við önnur félög en Alvarez vildi hvergi annars staðar.

Hann varð því um kyrrt og Koke vill nú að hann fái frið til að einbeita sér að fótboltanum.

„Leyfið honum að vera í ró og næði. Við erum allir orðnir dauðþreyttir á þessu. Leyfið stráknum að spila, njóta sín og vinna vinnuna sína. Ég vona að þið getið leyft honum að slaka á og fá sinn frið,“ sagði Koke við Movistar.

Alvarez var í byrjunarliði Atlético í 2-1 tapinu fyrir Liverpool á Anfield í gær og lagði upp eina mark liðsins. Marcos Llorente skoraði það snemma leiks.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.