Frakkland og Spánn eigast við í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar klukkan 18:45 á San Síró í kvöld.
Hinn 17 ára gamli Gavi er aftur í byrjunarliði spænska liðsins en hann lék glimrandi vel á miðjunni í sínum fyrsta leik fyrir A-landsliðið í sigrinum á Ítalíu í undanúrslitum.
Kylian Mbappe og Karim Benzema eru fremstir hjá Frökkum og þá er Presnel Kimpembe í vörninni. Aurilien Tchouameni er á miðjunni hjá Frökkum.
Spánn: Unai Simón, Azpilicueta, Laporte, García, Alonso, Gavi, Busquets, Rodri, Sarabia, Torres, Oyarzabal.
Frakkland: Lloris, Koundé, Varane, Kimpembe, Pavard, Pogba, Tchouaméni, T. Hernandez, Griezmann, Benzema, Mbappé.
Athugasemdir