Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 10. október 2021 19:39
Brynjar Ingi Erluson
Vill ekki tala um áhuga Tottenham á Vlahovic
Fabio Paratici
Fabio Paratici
Mynd: Getty Images
Fabio Paratici, yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham Hotspur, vildi ekki ræða um áhuga félagsins á serbneska framherjanum Dusan Vlahovic í viðtali við Gazzetta dello Sport.

Vlahovic hefur verið að raða inn mörkunum fyrir Fiorentina á Ítalíu en hann er eftirsóttur af bæði Manchester City og Tottenham.

Leikmaðurinn ætlar sér ekki að framlengja við Fiorentina og er eigandinn opinn fyrir því að selja hann en Paratici vildi þó ekki tjá sig um framherjann stóra og stæðilega og segist sáttur með að vera með Harry Kane.

„Ég vil ekki tala um Dusan Vlahovic þar sem hann er samningsbundinn Fiorentina, en líka af því við erum með Harry Kane, sem er besti framherji heims," sagði Paratici.

„Harry Kane elskar Tottenham. Við ákváðum að halda honum síðasta sumar og byrja að endurbyggja. Við erum sáttir við þá ákvörðun og það er engin þörf á því að hefja samningaviðræður við Harry," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner