 
    
                                    
                                                    
                
                                                                
                Boðið verður upp á sjónlýsingu á leik Íslands gegn Úkraínu sem fer fram á Laugardalsvelli í dag, föstudag, klukkan 18:45. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson mun sjá um lýsinguna að þessu sinni.
Fyrsta sjónlýsingin á fótboltaleik á Íslandi fór fram þann 17. júní þegar A-landslið karla tók á móti Slóvakíu í undankeppni EM 2024. KSÍ, Blindrafélagið og Samtök íþróttafréttamanna skrifuðu í kjölfarið undir samstarfssamning
Sjónlýsingin var hugsuð fyrir blinda fótboltaáhugamenn en er í boði fyrir alla, bæði þá sem mæta á völlinn og aðra. Ef þú vilt nýta þér sjónlýsinguna á leiknum í kvöld þá þarftu að mæta með þín eigin heyrnatól og snjallsíma.
                
                
                                    Fyrsta sjónlýsingin á fótboltaleik á Íslandi fór fram þann 17. júní þegar A-landslið karla tók á móti Slóvakíu í undankeppni EM 2024. KSÍ, Blindrafélagið og Samtök íþróttafréttamanna skrifuðu í kjölfarið undir samstarfssamning
Sjónlýsingin var hugsuð fyrir blinda fótboltaáhugamenn en er í boði fyrir alla, bæði þá sem mæta á völlinn og aðra. Ef þú vilt nýta þér sjónlýsinguna á leiknum í kvöld þá þarftu að mæta með þín eigin heyrnatól og snjallsíma.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 5 Úkraína
Til að nálgast sjónlýsinguna er bæði hægt að ná í smáforritið (appið) "Raydio - Audio Inklusion" eða fara á heimasíðu KSÍ.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
         
     
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                    
        
         
                 
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
        