Fotbolti.net
10.10.26 - 18:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

England: Læti og dramatík á Old Trafford

England: Læti og dramatík á Old Trafford
Canon

Mynd: EPA

Manchester Utd 1 - 1 Tottenham
1-0 Bryan Mbeumo ('73 )
1-1 Dominic Solanke ('90 )
Rautt spjald: Rodrigo Bentancur, Tottenham ('78)
Það var jafntefli í tíðindamiklum leik Man Utd og Tottenham á Old Trafford í kvöld. Tottenham byrjaði leikinn betur og Dominic Solanke komst í úrvalsfæri til að koma liðinu yfir strax í upphafi leiks.

Senne Lammens átti slaka sendingu í átt að Kobbie Mainoo. Lukas Bergvall komst í boltann og hann barst til Solanke en skotið var slakt og Lammens varði.

Mohammed Kudus átti síðan skot sem fór rétt framhjá eftir sendingu frá Savio. Conor Gallagher fékk síðan færi undir lok fyrri hálfleiks en var of lengi að athafna sig og Youri Tielemans komst fyrir.

Solanke var fyrirmunað að skora en hann fékk annað dauðafæri í upphafi seinni hálfleiks. Hann þurfti að teygja sig í boltann og skaut yfir.

Man Utd sótti í sig veðrið og náði forystunni þegar Bryan Mbeumo skoraði með hnitmiðuðu skoti úr teignum í fjærhornið.

Það sauð upp úr stuttu síðar þegar Rodrigo Bentancur fór í hættulega tæklingu á Luke Shaw. Enski bakvörðurinn var brjálaður og hrinti Bentancur. Hann svaraði með því að skalla Shaw og fékk rautt spjald að launum.

Mbeumo var nálægt því að bæta öðru markinu við en Antonin Kinsky varði vel frá honum.

Það var dramatík í lokin því Solanke tókst loksins að skora þegar hann setti höfuðið í boltann eftir sendingu frá Sandro Tonali og stýrði boltanum í netið.

Man Utd er í 12. sæti með sex stig eftir sex umferðir. Tottenham er í 18. sæti með þrjú stig.
England: Læti og dramatík á Old Trafford
Canon

Mynd: EPA

England: Læti og dramatík á Old Trafford
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Newcastle9-212
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Everton9-111
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.