10.10.26 - 14:56
Brynjar Ingi Erluson
Logi kom í veg fyrir mark hjá Salah - Nóel Atli með stoðsendingu

Logi spilaði gegn Salah í dag

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Nóel Atli lagði upp fyrir Álaborg

Mynd: Álaborg

Logi Tómasson og félagar í Samsunspor töpuðu 3-0 fyrir Trabzonspor í Svartahafsslag í tyrknesku úrvalsdeildinni í dag.
Mohamed Salah leikur nú með Trabzonspor eftir níu ár hjá Liverpool og lagði upp eitt mark liðsins gegn Samsunspor.
Logi fékk gult spjald snemma leiks og Trabzonspor gerði út um leikinn með þremur mörkum á tólf mínútna kafla í fyrri hálfleik. Salah fékk einnig dauðafæri til að skora en Logi bjargaði á síðustu stundu.
Boltinn barst til Salah eftir að markvörðurinn hafði varið skot og virtist Egyptinn aðeins þurfa að koma honum í autt markið. Logi var hins vegar snöggur að átta sig og náði að setja hnéð fyrir skotið.
Trabzonspor missti Melih Kabasakal af velli með rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks en Samsunspor tókst ekki að nýta sér liðsmuninn. Lokatölur urðu 3-0 og er Trabzonspor í þriðja sæti með 13 stig en Samsunspor í því sextánda með fjögur.
Nóel Atli Arnórsson lagði upp annað mark Álaborgar í 3-3 jafntefli við Esbjerg í dönsku B-deildinni. Álaborg er í fjórða sæti með 14 stig.

Trabzonspor'un yakalad??? net pozisyon.
— FutbolArena (@futbolarena) October 10, 2026
Muçi'nin ?utunu kaleci Okan Kocuk kurtard?.
Dönen topta Salah'?n vuru?unda son anda Tomasson araya girdi.
https://t.co/YuEv9AmAxu