Fotbolti.net
10.10.26 - 21:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Mark dæmt af Vinicius sem fékk rautt í kjölfarið

Spánn: Mark dæmt af Vinicius sem fékk rautt í kjölfarið
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid 1 - 0 Villarreal
1-0 Yan Diomande ('62 )
Rautt spjald: Vinicius Junior, Real Madrid ('73)
Vinicius Junior verður í banni gegn Barcelona þegar liðin mætast þann 25. október eftir að hafa fengið rautt spjald í sigri á Villarreal í kvöld.

Yan Diomande skoraði eina mark leiksins eftir laglega sendingu frá Federico Valverde inn á teiginn. Þetta var fyrsta markið hans fyrir liðið eftir komuna frá RB Leipzig í sumar.

Vinicius kom boltanum í netið stuttu síðar en markið var dæmt af þar sem hann var brotlegur í aðdragandanum. Hann reif í hárið á Nathan Saliba og fékk að líta rauða spjaldið.

Hann er líklega á leið í allt að þriggja leikja bann. Real Madrid mætir Sevilla í næstu umferð og svo fer liðið í heimsókn til Barcelona.

Real Madrid er í 3. sæti með 18 stig eftir átta umferðir en Villarreal er í 10. sæti með átta stig.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona13+3636
2Real Madrid13+2233
3Atletico Madrid13+1631
4Betis13+527
5Real Sociedad13022
6Sevilla13-219
7Racing Santander13-1217
8Athletic12+316
9Alaves13016
10Villarreal13+115
11Espanyol13015
12Deportivo13-115
13Osasuna13-1015
14Celta13-113
15Levante13-512
16Vallecano12-712
17Valencia13-1112
18Getafe13-1312
19Elche13-611
20Malaga13-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.