Þjálfarateymi Manchester United hefur áhyggjur af hugarfari Mason Greenwood og frammistöðu hans á æfingum.
Hinn 19 ára gamli Greenwood var ekki í leikmannahópi Manchester United gegn Everton um helgina.
The Times segir að ástæðan hafi verið sú að hugarfar og frammistaða leikmannsins á æfingum á föstudag hafi ekki verið ásættanleg.

Bruno Fernandes mun meðal annars hafa verið ósáttur við Greenwood fyrir að hlaupa ekki á eftir sendingu hans.
Greenwood var hent úr úr enska landsliðshópnum í september eftir að hafa brotið sóttvarnarreglur á Íslandi eins og frægt er. Síðan þá hefur hann átt frekar erfitt uppdráttar á tímabilinu.
Athugasemdir