banner
   fim 10. nóvember 2022 22:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Yngsti markaskorari í sögu Lazio
Moise Kean
Moise Kean
Mynd: EPA

Hinn 17 ára gamli Luka Romero var hetja liðsins í sigri á Monza í efstu deildinni á Ítalíu í kvöld.


Hann kom inn á sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks en þetta reyndist eina markið. Þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið.

Hann lýsti þessu sem bestu afmælisgjöf sem hann gat fengið en hann verður 18 ára eftir átta daga. Lazio er í 2. sæti en Napoli er í góðri stöðu á toppnum, 8 stigum á undan Lazio.

Moise Kean var hetja Juventus sem vann Verona 1-0. Alex Sandro var rekinn af velli í uppbótartíma en hann braut á  Kevin Lasagna sem var að sleppa í gegn.


Athugasemdir
banner
banner