Aron Sigurðarson og hans lið í St. Gilloise steinlá í belgíska bikarnum í kvöld en leikið var í 16-liða úrslitum.
Stórlið Anderlecht kom í heimsókn á Stade Joseph völlinn í Brussel og var í engum vandræðum með heimaliðið.
Aronm byrjaði leikinn á varamannabekknum en kom við sögu þegar um 20 mínútur voru eftir.
Staðan var 3-0 fyrir Anderlecht þegar Aron kom inná og bætti liðið svo við tveimur mörkum í öruggum 5-0 sigri.
Tveir leikmenn Anderlecht gerðu tvennu í viðureigninni eða þeir Lukas Nmecha og Abdoulay Diaby.
Athugasemdir