Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. febrúar 2021 19:03
Victor Pálsson
Byrjunarlið Barnsley og Chelsea - Kepa og Gilmour byrja
Mynd: Getty Images
Það eru breytingar á liði Chelsea í kvöld sem spilar við Barnsley í enska bikarnum á útivelli.

Ljóst er að Barnsley þarf að eiga ansi góðan leik í kvöld til að eiga möguleika á að slá úrvalsdeildarliðið úr leik

Barnsley leikur í næst efstu deild Englands og eftir 27 leiki situr liðið í 13. sæti deildarinnar eftir brösugt gengi undanfarið.

Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, gefur mönnum tækifæri í leik kvöldsins og má nefna Kepa Arrizabalaga í markinu og Billy Gilmour á miðjunni.

Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.

Barnsley: Collins, Brittain, Sibbick, Helik, Andersen, Styles, Mowatt, Kane, Chaplin, Woodrow, Adeboyejo

Chelsea: Kepa, Emerson, Christensen, Zouma, Alonso, Gilmour, Kante, Hudson-Odoi, Ziyech, Pulisic, Abraham
Athugasemdir
banner