Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 11. febrúar 2021 21:51
Victor Pálsson
Enski bikarinn: Abraham hetja Chelsea
Mynd: Getty Images
Barnsley 0 - 1 Chelsea
0-1 Tammy Abraham('64)

Chelsea er komið í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir leik við Barnsley á útivelli í kvöld.

Barnsley mætti mjög vel til leiks á heimavelli og var í raun hættulegri aðilinn eftir fyrsta hálfleikinn.

Ekki tókst liðinu þó að koma boltanum í netið en Kepa Arrizabalaga í marki Chelsea varði eitt sinn mjög vel.

Fyrsta og eina mark leiksins var skorað á 64. mínútu en Tammy Abraham gerði það eftir sendingu frá Reece James.

Abraham gerði enn meira þegar 13 mínútur voru eftir og náði að bjarga á línu þegar Barnsley var nálægt því að skora.

Chelsea vinnur því 1-0 útisigur og mætir Sheffield United í næstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner