Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 11. febrúar 2021 19:27
Victor Pálsson
Enski bikarinn: Southampton vann sannfærandi gegn Wolves
Mynd: Getty Images
Wolves 0 - 2 Southampton
0-1 Danny Ings('49)
0-2 Stuart Armstrong('90)

Southampton vann góðan sigur í 16-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld er liðið mætti Wolves á útivelli.

Southampton var mun sterkari aðilinn á Molineaux vellinum og komst nokkuð sannfærandi áfram í næstu umferð.

Liðið tapaði nýlega 9-0 gegn Manchester United í deild en það virðist ekki hafa haft áhrif á sjálfstraust leikmanna á velli.

Danny Ings skoraði fyrsta mark leiksins fyrir gestina snemma í seinni hálfleik en hann kom boltanum í netið á 49. mínútu.

Staðan var 1-0 þar til á 90. mínútu er Stuart Armstrong skoraði fínt mark og ljóst að Southampton væri á leið áfram.

Southampton verður því í pottinum í kvöld er dregið er í 8-liða úrslitin.
Athugasemdir
banner
banner