11.02.26 - 08:55
Elvar Geir Magnússon
Rooney kominn með nóg af þeim hárprúða

Frank Ilett hinn hárprúði.

Mynd: Skjáskot

Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United.

Mynd: EPA

Frank Ilett hinn hárprúði.

Mynd: Skjáskot
Wayne Rooney er enginn aðdáandi Frank Ilett, The United Strand; stuðningsmannsins sem ætlar ekki í klippingu fyrr en Manchester United vinnur fimm leiki í röð.
Ilett streymdi frá því þegar hann horfði á 1-1 jafnteflisleikinn gegn West Ham í gær en Man Utd hafði unnið fjóra leiki í röð þegar kom að leiknum. Ilett var sár og svekktur í leikslok enda beðið í um 500 daga eftir því að losna við hárið.

TENGT EFNI
England: Sigurgöngu Carrick lokið - Engin klipping
„Ég myndi fara með hann á hinn enda landsins. Ég er alveg kominn með nóg af honum. Hann fer í taugarnar á mér," sagði Rooney þegar hann var spurður að því hvort hann væri klár í að klippa hár Ilett.
„Við erum að tala um Man United að reyna að vinna fimmta leik sinn í röð og allt snýst um hvort hann fái klippingu. Ég þori að veðja að hann verður niðurbrotinn ef United vinnur fimmta leikinn því allt í einu mun hann ekki fá neina athygli."
Carrick ánægður með sína uppskeru
Þrátt fyrir jafnteflið í gær er Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, ánægður með sína uppskeru.
„Ef við horfum yfir þessa fimm leiki; fjórir sigrar og bara eitt jafntefli. Þetta er mjög jákvætt. Það er gríðarlega erfitt að setja saman langa sigurgöngu í þessari deild," sagði Carrick eftir leikinn í gær.

Frank Ilett is devasted seeing Manchester United loosing to West Ham United pic.twitter.com/cQbxpJJid8
— Uncle Billy (@BillyTheOG) February 10, 2026

Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United.

Mynd: EPA
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 8 | +16 | 16 |
| 4 | Liverpool | 8 | +3 | 15 |
| 5 | Chelsea | 8 | +2 | 13 |
| 6 | Brentford | 8 | +5 | 11 |
| 7 | Leeds | 8 | +3 | 11 |
| 8 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 9 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 10 | Hull City | 8 | +1 | 10 |
| 11 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 12 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 13 | Bournemouth | 8 | -1 | 9 |
| 14 | Tottenham | 8 | -2 | 9 |
| 15 | Fulham | 8 | -2 | 8 |
| 16 | Man Utd | 8 | -3 | 7 |
| 17 | Crystal Palace | 8 | -10 | 7 |
| 18 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 19 | Coventry | 8 | -9 | 6 |
| 20 | Sunderland | 8 | -8 | 5 |