Fotbolti.net
11.05.21 - 21:07
Ívan Guðjón Baldursson

England: Ings tryggði sigurinn með tvennu

Danny Ings er með 12 mörk í 26 leikjum á tímabilinu.

Danny Ings er með 12 mörk í 26 leikjum á tímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Southampton 3 - 1 Crystal Palace</b>
0-1 Christian Benteke ('2)
1-1 Danny Ings ('19)
1-1 Luka Milivojevic, misnotað víti ('40)
2-1 Che Adams ('48)
3-1 Danny Ings ('75)
Danny Ings kom aftur inn í lið Southampton í dag eftir að hafa verið að glíma við meiðsli að undanförnu.

Southampton tók á móti Crystal Palace og lenti undir snemma leiks þegar Christian Benteke skoraði en Ings jafnaði fyrir Southampton.

Gestirnir fengu vítaspyrnu á 40. mínútu eftir klaufalegt brot Nathan Redmond innan vítateigs en Luka Milivojevic brást bogalistin. Hann átti fínustu vítaspyrnu en Fraser Forster varði meistaralega.

Che Adams kom heimamönnum yfir í upphafi síðari hálfleiks og var leikurinn nokkuð jafn. Heimamenn nýttu færin betur og innsiglaði Ings sigurinn á 75. mínútu.

Bæði lið sigla lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar. Southampton með 40 stig og Palace 41.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.