27.10.26 - 22:10
Ívan Guðjón Baldursson
Enski deildabikarinn: Fleetwood sló Arsenal úr leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það voru leiknir tveir leikir í 16-liða úrslitum deildabikarsins í kvöld þar sem Englandsmeistarar Arsenal heimsóttu D-deildarlið Fleetwood Town í því sem átti að vera þægilegur skyldusigur fyrir lærlinga Mikel Arteta, en sú varð ekki raunin.
Heimamenn í liði Fleetwood náðu forystunni á 21. mínútu eftir slakan varnarleik Marli Salmon sem réði ekki við Aaron Loupalo-Bi. Loupalo-Bi gerði vel að klára færið með marki eftir að hafa sigrað baráttuna við Salmon.
Arsenal fékk færi til að jafna en boltinn rataði ekki í netið og gerði Mikel Arteta tvöfalda skiptingu í leikhlé, þar sem Ben White og Martin Ödegaard fengu að spreyta sig.
Viktor Gyökeres jafnaði á 50. mínútu og skapaði Arsenal góð færi en tókst ekki að bæta marki við í venjulegum leiktíma. 16 ára Max Dowman fékk að líta beint rautt spjald á 85. mínútu þegar hann sparkaði í liggjandi leikmann Fleetwood og kláruðu Englandsmeistararnir leikinn einum manni færri.
Lokatölur urðu 1-1 og því var gripið til vítaspyrnukeppni. Þar skoruðu bæði lið úr fyrstu þremur spyrnunum en Bruno Guimaraes brenndi fjórðu spyrnu Arsenal af.
Fleetwood nýtti allar sínar spyrnur og vann vítakeppnina því 5-3. Ótrúleg úrslit.
Fyrr í kvöld hafði Bradford City betur gegn Peterborough í League One slag í deildabikarnum.
Fleetwood Town 1 - 1 Arsenal
1-0 Aaron Loupalo-Bi ('21 )
1-1 Viktor Gyökeres ('50 )
Rautt spjald: Max Dowman, Arsenal ('85)
5-3 í vítaspyrnukeppni
Bradford 2 - 0 Peterborough United
1-0 Macaulay Gillesphey ('13 )
2-0 Adam Phillips ('67 )