Álitið - Atvik tímabilsins

Rígur Víkings og KR fær nokkrar tilnefningar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Svo er það gleymt atvik þegar Hemmi Hreiðars kýldi Ástbjörn Þórðarson eftir leik Vals og KR fyrr í sumar (líður eins og það séu tvö ár síðan).

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Neuer á sínum tíma var léttmeti miðað við það sem við sáum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Einhver 18 rauð spjöld og KR-ingar svaka flottir eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mark Aron Birkis fékk ekki tilnefningu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Rígur Víkings og KR fær nokkrar tilnefningar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR-ingar hafa svo sannarlega séð um skemmtunina í sumar og það endurspeglast heldur betur í svörum álitsgjafanna, sem allir nefndu atvik tengd Vesturbæjarliðinu.
Athygli vekur þó að mark Arons Birkis Stefánssonar, markvarðar Þórs, frá miðju hlaut enga tilnefningu. Það mark kom einmitt gegn KR og hefði því fallið vel að þema álitsgjafanna.
Mig langar að nefna tvennt og það tengist bæði KR.
Í fyrsta lagi er það Íslandsmeistarafögnuður Víkinga á Meistaravöllum. KR-ingar kveiktu á úðakerfinu, það varð allt vitlaust í „göngunum“ eftir leik og Óskar Hrafn fór í magnað viðtal við Vísi sem einhverra hluta vegna var ekki einu sinni sýnt í Stúkunni um kvöldið.
Svo er það gleymt atvik þegar Hemmi Hreiðars kýldi Ástbjörn Þórðarson eftir leik Vals og KR fyrr í sumar (líður eins og það séu tvö ár síðan). Alltaf eðlilegt þegar þjálfari tapliðsins tuskar menn í hinu liðinu til eftir leiki.
Viktor Unnar Illugason
Það verður að vera þessi rígur sem hefur verið að byggjast upp i sumar a milli Vikings og KR. Manni er strax farið að hlakka til næsta sumars
Jóhann Páll Ástvaldsson
Þegar hitakortið hans Arnars Freys var eins og hjá vængbakverði, upp og niður vænginn og dælandi boltum inn á teig. Eiginlega hálf ótrúlegt að klippurnar hafi ekki farið hringinn í kringum heiminn. Neuer á sínum tíma var léttmeti miðað við það sem við sáum.
Ásgeir Frank Ásgeirsson
Ætli það sé ekki bara nokkur atvik úr viðureignum Víkings og KR.
- Dramatíkin í 1-1 jafntefli í Vesturbæ þegar Ekroth neglir í Aron og svo dramatíkin þar, tvö mörk í uppbótartíma.
- 1-2 leikurinn sem tryggir Víkingi titilinn og 5 rauð spjöld.
Hilmar Jökull Stefánsson
Ætli það sé ekki bara allur leikur Víkings og KR á “Meistara”völlum þegar Víkingar tryggðu sér titilinn. Einhver 18 rauð spjöld og KR-ingar svaka flottir eftir leik.

Álitið - Erfiðustu stuðningsmennirnir?

Álitið - Mestu vonbrigðin?

Álitið - Hvað hefur komið mest á óvart?

,,Svo er það gleymt atvik þegar Hemmi Hreiðars kýldi Ástbjörn Þórðarson eftir leik Vals og KR fyrr í sumar (líður eins og það séu tvö ár síðan).

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Neuer á sínum tíma var léttmeti miðað við það sem við sáum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Einhver 18 rauð spjöld og KR-ingar svaka flottir eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mark Aron Birkis fékk ekki tilnefningu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
