Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 11. maí 2021 14:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Telma lék ekki í gær vegna meiðsla - „Vildum ekki taka áhættuna"
Telma í leiknum gegn Fylki
Telma í leiknum gegn Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti athygli í gær þegar nafn Telmu Ívarsdóttur sást á bekknum hjá Breiðabliki gegn ÍBV.

Telma var í byrjunarliði Blika gegn Fylki í 1. umferð þar sem Breiðablik vann öruggan sigur. Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir stóð vaktina á Hásteinsvelli í gær.

Lestu um leikinn: ÍBV 4 - 2 Breiðablik

Fréttaritari ræddi við Vilhjálm Kára Haraldsson, þjálfara Breiðabliks, í dag og staðfesti Vilhjálmur að Telma var ekki í markinu vegna meiðsla.

„Það var vegna meiðsla, ekkert annað. Telma var meidd og við vildum ekki taka áhættuna á því að spila henni, ef hún skildi meiðast bara strax. Hún gat ekki æft á síðustu æfingu fyrir leik og hún var ekki klár í leikinn," sagði Vilhjálmur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner