Víkingur vann stórsigur á Þór, 6-0, síðastliðinn föstudag. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, á ekki góðar minningar úr síðustu heimsóknum sínum í Víkina sem aðalþjálfari.
Þegar hann stýrði Leikni í Víkinni árið 2022 tapaði liðið 9-0 gegn Víkingi. Á þeim tíma var það stærsti ósigur í efstu deild í 29 ár.
Hann var jafnframt á hliðarlínunni hjá Leikni haustið 2021 þegar Víkingur vann 2-0 í lokaumferðinni og tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í 30 ár.
Sem aðstoðarþjálfari hefur uppskeran þó verið skárri. Hann var aðstoðarmaður Arnars Grétarsonar hjá Val sumarið 2023. Á venjulegu tímabili vann Valur 3-2 sigur á Víkingi í Víkinni en í tvískiptingunni tapaði liðið 5-1.


