Fotbolti.net
11.06.23 - 19:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Skoraði sitt fyrsta mark fyrir Þór/KA - „Var frábær og verður bara betri"

Auglýsing
Una Móeiður Hlynsdóttir

Una Móeiður Hlynsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Hertz

Þór/KA vann virkilega góðan sigur á Selfossi í Bestu deild kvenna í dag en liðið hafði tapað þremur leikjum í röð áður en kom að þessum leik. Fótbolti.net spjallaði við Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfara liðsins eftir leikinn.

„Ég er himinnlifandi, við þurftum virkilega á þessu að halda. Þetta er gríðarlega kærkomið og frábært að gera þetta á heimavelli fyrir framan fólkið okkar og með þessum hætti, ekkert mark á okkur og þrjú góð (mörk skoruð) og hefðu getað verið fleiri," sagði Jóhann.

Hann var virkilega ánægður með fyrri hálfleikinn og ánægður að hafa klárað með sigri eftir erfiða byrjun á seinni hálfleik.

„Við vorum að tala um það í lokin á fyrri hálfleik að okkur langaði að ná þessu þriðja marki í fyrri hálfleik því okkur fannst við vera búin að skapa færi til þess," sagði Jóhann

„Rosalega sterkt að fá þetta í seinni hálfleik. Frábær hornspyrna frá Jakó (Jakobínu Hjörvarsdóttur) sem endar með þessum góða skalla. Við vitum hvað Tahnai (Annis) getur í loftinu."

Una Móeiður Hlynsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Þór/KA í efstu deild í dag.

„Hún var frábær, hún er búin að vera í erfiðum meiðslum og við vitum alveg hvað hún getur. Við erum búin að bíða eftir henni, það er bara þannig, hún var frábær í dag og verður bara betri," sagði Jóhann.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.