Fotbolti.net
11.06.26 - 20:26
Brynjar Ingi Erluson

Fyrsta rauða spjald HM komið - Skelfileg frammistaða Sithole

Yaya Sithole átti ömurlega frammistöðu í opnunarleiknum

Yaya Sithole átti ömurlega frammistöðu í opnunarleiknum

Canon

Mynd: EPA

Yaya Sithole, landsliðsmaður Suður-Afríku, vill líklega gleyma opnunarleiknum gegn Mexíkó sem allra fyrst, en hann átti stóran þátt í markinu sem liðið fékk á sig og var rétt í þessu að fá að líta rauða spjaldið.
Sjáðu fyrsta mark HM: Hræðileg mistök hjá Suður-Afríku
TENGT EFNI

Sjáðu fyrsta mark HM: Hræðileg mistök hjá Suður-Afríku

Mexíkó hefur verið með mikla yfirburði gegn Suður-Afríku og hæglega getað skorað þrjú til fjögur mörk, en staðan er aðeins 1-0.

Sithole, sem spilar á miðjunni, tapaði boltanum í marki Mexíkó á 9. mínútu og þá var hann að fá reisupassann fyrir örfáum mínútum.

Boltinn kom inn fyrir vörnina og elti Sithole mexíkóska miðjumanninn Brian Gutierrez uppi sem var kominn í gegn. Sithole flæktist í löppunum á Gutierrez og var dómarinn ekki lengi að draga rauða spjaldið úr vasanum.

Mexíkóar vildu fá vítaspyrnu, en brotið átti sér stað fyrir utan teiginn og var því aukaspyrna dæmd. Suður-Afríkumenn manni færri og marki undir þegar rúmur hálftími er eftir af venjulegum leiktíma.

FotMob gefur Sithole 3,9 í einkunn fyrir frammistöðuna og þá fær hann 4,1 á FlashScore.

Sjáðu rauða spjaldið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.