Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 15:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Markús Páll: Þetta væri góður tímapunktur fyrir tap hjá Víkingi
Hefur spilað mjög vel í upphafi tímabils.
Hefur spilað mjög vel í upphafi tímabils.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik ÍA og Víkings í deildinni.
Úr leik ÍA og Víkings í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Það sem hefur vantað eru bara stigin'
'Það sem hefur vantað eru bara stigin'
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
ÍA tekur á móti Víkingi klukkan 20:15 á ELKEM vellinum á Akranesi á morgun. Leikurinn er liður í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Fótbolti.net ræddi við Markús Pál Ellertsson, sóknarmann ÍA, fyrir leikinn.

„Leikurinn leggst bara vel í mig, ég er spenntur fyrir þessum leik á heimavelli. Við þurfum bara að spila okkar leik og mæta bara með krafti," segir Markús Páll.

Er hægt að særa þetta besta lið Íslands í dag?

„Öll lið þurfa einhvern tímann að tapa, góður tími fyrir það væri á móti okkur."

Hvernig líður þér með byrjun ÍA á tímabilinu?

„Byrjunin hefur verið solid, það sem hefur vantað eru bara stigin. En hópurinn er góður og hefur alla burði til að fara ennþá hærra."

Markús er tvítugur sóknarmaður sem kom til ÍA frá Triestina á Ítalíu í vetur. Markús hefur skorað sex mörk í fyrstu níu deildarleikjunum. Hefur byrjunin komið á óvart?

„Já og nei, auðvitað er gott að byrja svona vel en þá virkar það bara þannig að þetta verður erfiðara með tímanum. Ég var svolítið óþekkt stærð þegar ég kom inn í deildina. Það kemur mér ekkert á óvart við þessa deild, maður veit alveg að öll lið eru að verða betri og deildin sterkari."

„Ég myndi segja að mínar bestu stöður séu frammi og á kantinum eða í hálfsvæðinu."


Ertu með einhver skilaboð til stuðningsmanna?

„Þau er bara að það verður gott veður, góður leikur og vonandi mæta sem flestir til að öskra okkur áfram. Þá tökum við þetta," segir Markús.


Slapp
banner
banner