Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. júlí 2020 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Norwich fallið oftar en nokkurt annað lið
Pukki-partýið var ekki langlíft.
Pukki-partýið var ekki langlíft.
Mynd: Getty Images
Norwich er fallið úr ensku úrvalsdeildinni eftir tap gegn West Ham á heimavelli, 0-4.

Michail Antonio skoraði öll fjögur mörk West Ham í leiknum.

Norwich komst upp í ensku úrvalsdeildina fyrir þessa leiktíð en stoppar ekki lengi í deild þeirra bestu á Englandi.

Norwich hefur mikið verið að flakka á milli deilda en liðið setti nýtt met í dag. Frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar árið 1992 hefur ekkert lið fallið oftar en Norwich eða fimm sinnum.

Kanarífuglarnir hafa aðeins unnið fimm deildarleiki á tímabilinu og eru með 21 stig eftir 34 leiki. Liðið hefur tapað öllum sínum leikjum eftir að deildin hófst aftur eftir Covid-pásuna.


Athugasemdir
banner
banner