Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. júlí 2021 14:41
Brynjar Ingi Erluson
Flest mörk úr Seríu A
Cristiano Ronaldo er með fimm mörk
Cristiano Ronaldo er með fimm mörk
Mynd: EPA
Flest mörk á Evrópumótinu hafa komið frá leikmönnum sem spila í Seríu A. Mörkin eru 36 talsins.

Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus, er markahæstur með 5 mörk ásamt Patrik Schick, sem spilar fyrir Leverkusen.

Romelu Lukaku, framherji Inter, er með 4 mörk, líkt og Harry Kane, Karim Benzema og Emil Forsberg.

Leikmenn úr Seríu A eru með 36 mörk en enska úrvalsdeildin kemur næst á eftir með 29 mörk. Þýska deildin er þá með 28 mörk.

Spænska deildin er með aðeins níu mörk á þessu móti og næst á eftir kemur franska deildin með sjö mörk.

Þá hafa samtals verið ellefu sjálfsmörk á mótinu, met sem verður seint slegið.
Athugasemdir
banner
banner
banner