Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 11:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterkust í 5. umferð - Ekkert eðlilega skemmtilegur karakter
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir (Þróttur R.)
Sigríður Theodóra Guðmundsdóttir.
Sigríður Theodóra Guðmundsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hefur farið frábærlega af stað í sumar.
Hefur farið frábærlega af stað í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir, leikmaður Þróttar, er sterkasti leikmaður 5. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar.

Hún var maður leiksins þegar Þróttur vann geggjaðan 1-4 sigur gegn Víkingi á útivelli í gær.

„Sigríður skoraði tvö góð mörk í dag og lét heldur betur hafa fyrir sér í dag, hún er komin með fjögur mörk í deildinni og er markahæst með Allison Grace," skrifaði Guðmundur Jónasson í skýrslu sinni frá leiknum.

Sigríður Theódóra hefur verið mjög góð í sumar og skoraði meðal annars líka í 3-2 sigri gegn Breiðabliki í Mjólkurbikarnum um síðustu helgi.

Hún skrifaði undir nýjan samning í Laugardalnum fyrir stuttu og líður vel þar. „Það er bara æðislegt að vera í Laugardalnum. Það var aldrei spurning um annað en að vera þar áfram, þannig mér líður mjög vel," sagði hún við Fótbolta.net á dögunum.

Rætt var um þennan öfluga leikmann í Uppbótartímanum í gær. „Sigríður Theódóra er bara dottin í gang, búin að skora fullt af mörkum," sagði Snæbjört Pálsdóttir í þættinum.

„Það er auðvelt að samgleðjast Siggu. Ég þjálfaði hana í þónokkur ár í Val. Þetta er ekkert eðlilega skemmtilegur karakter og manneskja sem leggur rosalega mikið á sig. Þetta hefur verið upp og niður frá því hún var keypt í Þrótt á ágætis pening. Það voru bundnar þokkalega miklar vonir við hana. Það er gaman að sjá að hún er að fá traust og að henni líði vel," sagði Arnar Páll Garðarsson.

„Ég er ofboðslega ánægður fyrir hönd hennar. Þetta er leikmaður með fullt af hæfileikum."
Uppbótartíminn - Bæði lið áttu núll stig skilið
Slapp
banner
banner