Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
Ingibjörg Magnúsdóttir er sterkasti leikmaður 6. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar. Hún var frábær þegar FH vann geggjaðan 2-3 útisigur gegn Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks.
„Skoraði gott mark og vann vítið. Var sífellt ógnandi og hefði hæglega getað sett annað mark," skrifaði Gylfi Már Þórðarson í skýrslu sinni en Ingibjörg fiskaði vítið sem sigurmark FH í leiknum kom upp úr.
„Skoraði gott mark og vann vítið. Var sífellt ógnandi og hefði hæglega getað sett annað mark," skrifaði Gylfi Már Þórðarson í skýrslu sinni en Ingibjörg fiskaði vítið sem sigurmark FH í leiknum kom upp úr.
Ingibjörg er gríðarlega efnilegur leikmaður, aðeins 17 ára gömul en hún hefur verið að fá stærra og stærra hlutverk í liði FH að undanförnu.
Rætt var um hana í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann hér á Fótbolta.net.
„Þakið er mjög hátt. Hún er einn af þessum einstöku leikmönnum í deildinni," sagði Arnar Páll Garðarsson þegar rætt var um Ingibjörgu.
„Þegar ég tala um einstaka leikmenn þá eru það leikmenn sem geta unnið manninn sinn einn á einn, hvort sem það er á litlu eða stóru svæði. Það eru ekki svo margir leikmenn í þessari deild sem hafa þennan eiginleika."
„Ef það er haldið rétt um hana, hún fær traust og á fleiri svona leiki þá verður hún ekki í þessari deild á næsta ári," sagði Arnar Páll jafnframt.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.
21.05.2026 11:45
Sterkust í 5. umferð - Ekkert eðlilega skemmtilegur karakter
13.05.2026 11:30
Sterkust í 4. umferð - Kom á láni rétt fyrir fyrsta leik
06.05.2026 23:58
Sterkust í 3. umferð - Bara eins og uppalin Eyjakona
03.05.2026 17:15
Sterkust í 2. umferð - Varnarmaður sem átti þátt í báðum mörkunum


