11.08.26 - 19:46
Brynjar Ingi Erluson
Kristall skoraði og fékk rautt þegar Brann tryggði sér sæti í umspilinu

Kristall Máni fékk sitt annað gula eftir mjög sérstakt atvik

Mynd: Sportsklubben Brann

Norska liðið Brann er komið í umspil Sambandsdeildar Evrópu eftir magnaðn 4-2 sigur á kýpverska liðinu Apollon í Kýpur í kvöld. Kristall Máni Ingason skoraði og sá síðan rautt fyrir furðulegt atvik undir lok leiksins.
Brann tapaði fyrri leiknum 1-0 á heimavelli og þurfti því að eiga stórleik við krefjandi aðstæður á Kýpur.
Þrátt fyrir mikinn hita og léleg loftgæði komst Brann yfir á 16. mínútu. Eggert Aron Guðmundsson sendi boltann á Kristal Mána sem skoraði keimlíkt mark og gegn Rosenborg á dögunum. Hann keyrði inn í teiginn, lék á varnarmann og lagði boltann snyrtilega í hornið.
Sjáðu markið hér
Eggert fór af velli þegar stundarfjórðungur var eftir. Rúmum tíu mínútum síðar jafnaði Apollon og allt stefndi í að Brann félli úr leik.
Noah Holm var þó ekki hættur og skoraði seint í uppbótartíma. Markið kom Brann í 2-1 og tryggði framlengingu.
Heimamenn voru fljótir að ná aftur forskotinu í einvíginu en Brann svaraði með tveimur mörkum og sneri því sér í vil.
Norska liðið hélt út og vann 4-2 sigur en varð fyrir miklu áfalli undir lokin þegar Kristall fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Kristall lá þá í grasinu og þurfti aðhlynningu. Dómarinn gekk að honum og benti honum á að fara út af vellinum. Þegar Kristall stóð upp lenti hann í stuttu orðaskaki við leikmann Apollon áður en dómarinn dró skyndilega upp gula spjaldið og síðan það rauða.
Stórfurðulegt atvik og ekki var augljóst fyrir hvað Kristall fékk spjaldið. Mögulega fyrir leiktöf eða kjaftbrúk, en það var samt Brann sem fagnaði í leikslok eftir svakalega frammistöðu.
Sjáðu rauða spjaldið hér
Brann fær sitt erfiðasta verkefni til þessa í umspilinu. Þar bíður annað hvort Anderlecht frá Belgíu eða PAOK frá Grikklandi.
Logi Hrafn Róbertsson kom inn af bekknum á 59. mínútu í 2-1 sigri Värnamo á Helsingborg í sænsku B-deildinni. Värnamo er í 14. sæti með 17 stig.