Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fös 11. september 2020 17:00
Elvar Geir Magnússon
Ofursunnudagur framundan í Pepsi Max
Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar.
Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik leikur gegn FH og Valur mætir Víkingi.
Breiðablik leikur gegn FH og Valur mætir Víkingi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pepsi Max-deild karla fer aftur á fleygiferð á sunnudaginn en óhætt er að segja að gómsætur sunnudagur sé framundan með þremur stórleikjum.

Mega ekki við því að tapa stigum
Íslandsmeistarar KR taka á móti Stjörnunni klukkan 14:00 og Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, talar um leikinn sem hálfgerðan úrslitaleik.

„Við þurfum að vera góðir á sunnudaginn því Stjarnan er með frábært lið. Við erum á sama stað í deildinni og hvorugt liðið má eiginlega við því að tapa stigum til að taka þátt í toppbaráttunni. Þetta verður hörkuleikur," segir Rúnar Kristinsson.

Nafni hans, Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar er borubrattur fyrir leikinn.

„Það verður gaman að fara á Meistaravellina og taka þrjú stig," sagði Rúnar Páll í viðtali eftir að Stjarnan tapaði gegn FH í bikarnum í gær.

Aftur fótboltaveisla?
Á Kaplakrikavelli tekur FH á móti Breiðabliki klukkan 16 en Kópavogsliðið er í öðru sæti.

„FH hefur náð góðum úrslitum undir stjórn nýrra þjálfara og eru svo sannarlega erfiðir andstæðingar. Við þurfum að vera klárir á sunnudaginn," segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks.

Það var fótboltaveisla á boðstólnum þegar þessi lið áttust við í júlí en þá enduðu leikar 3-3. Vonandi verður skemmtanagildið það sama á sunnudaginn.

Undir ljósunum á Hlíðarenda
Um kvöldið leikur svo topplið Vals gegn bikarmeisturum Víkings undir flóðljósunum á Hlíðarenda.

„Það er hörkuleikur framundan og við verðum að undirbúa okkur mjög vel, Víkingur er með hörkulið," segir Tufa, aðstoðarþjálfari Vals.

Þessi viðureign á síðasta ári er eftirminnileg, 3-3 í geggjuðum opnunarleik. Víkingar eiga harma að hefna frá því í júlí þegar þeir töpuðu 1-5 gegn Val á heimavelli.

sunnudagur 13. september
14:00 KR-Stjarnan (Meistaravellir)
16:00 KA-Fylkir (Greifavöllurinn)
16:30 FH-Breiðablik (Kaplakrikavöllur)
19:15 HK-ÍA (Kórinn)
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner