Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 11. október 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Klopp stjóri mánaðarins annað skipti í röð
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur verið útnefndur stjóri september mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Þetta er annar mánuðurinn í röð sem Klopp fær þessi verðlaun.

Eddie Howe stjóri Bournemouth, Frank Lampard stjóri Chelsea og Brendan Rodgers stjóri Leicester komu einnig til greina í valinu að þessu sinni.

Liverpool hefur unnið alla átta leiki sína í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu undir stjórn Klopp.

Í september vann liðið leiki gegn Newcastle, Chelsea og Sheffield United.
Athugasemdir
banner
banner