 
                        
                        
                                    
                                                    
                
                                                                
                Andreas Skov Olsen, kantmaður danska landsliðsins og Bologna, var fluttur með sjúkrabíl af Laugardalsvelli eftir 3-0 sigur á Íslandi í Þjóðadeildinni í kvöld.
                
                
                                    Skov kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik en hann var borinn meiddur af velli í viðbótartíma.
„Þetta er ungur og efnilegur strákur. Það er leiðinlegt að sjá hann fara í sjúkrabíl en vonandi er þetta ekki alvarlegt," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson á Stöð 2 Sport eftir leik.
Kasper Schmeichel, markvörður Dana, fór ekki inn í búningsklefa eftir leik heldur var hann við sjúkrabílinn á hlaupabrautinni til að sýna Skov Poulsen stuðning sinn.
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
         
     
                    
        
         
                        
        
         
                                                                        
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                
