Fotbolti.net
11.10.26 - 12:55
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Tíu Dýrlingar héldu út í baráttunni um suðurströndina

James Bree skoraði sigurmark Southampton sem var að vinna Portsmouth í fyrsta sinn í meira en 20 ár

James Bree skoraði sigurmark Southampton sem var að vinna Portsmouth í fyrsta sinn í meira en 20 ár

Canon

Mynd: Southampton FC/X

Southampton 1 - 0 Portsmouth
1-0 James Bree ('20 )
Rautt spjald: Cameron Bragg, Southampton ('44)
Southampon marði 1-0 sigur á Portsmouth í suðurstrandaslag í 9. umferð ensku B-deildarinnar á St. Mary´s leikvanginum í dag.

James Bree skoraði sigurmarkið eftir tuttugu mínútna leik er hann fékk sendingu frá Finn Azaz, lærisivein Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu, og skoraði Bree með yfirvegaðri afgreiðslu.

Undir lok hálfleiksins sá Cameron Bragg, leikmaður Southampton, sitt annað gula spjald. Bæði spjöldin fremur heimskuleg og heimamenn manni færri.

Portsmouth pressaði í þeim síðari. Adrian Segecic átti skot rétt framhjá markinu og þá björguðu heimamenn á línu nokkrum mínútum síðar.

Það merkilega við þennan grannaslag er að hvorugt liðanna hafði tekist að vinna hvort annað í deildinni 21 ár eða síðan Portsmouth vann Southampton á Fratton Park árið 2005.

Það breyttist í dag því Southampton tókst að halda þetta út og fagna sigri en liðið er nú í 11. sæti með 13 stig á meðan Portsmouth er í 19. sæti með 8 stig.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.