Fotbolti.net
25.11.26 - 10:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hjörvar aftur til Eyja (Staðfest)

Hjörvar aftur til Eyja (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Markvörðurinn Hjörvar Daði Arnarsson er búinn að skrifa undir samning við ÍBV og snýr því aftur til Vestmannaeyja eftir eitt ár í burtu.

Hjörvar er 26 ára og lék með Grindavík í Lengjudeildinni í sumar.

Hann skrifar undir tveggja ára samning í Eyjum.
Hjörvar með samning frá ÍBV á borðinu
TENGT EFNI

Hjörvar með samning frá ÍBV á borðinu

Hjörvar er uppalinn HK-ingur og hefur leikið með Völsungi, Hetti/Hugin, ÍBV og Grindavík á sínum ferli.

ÍBV féll úr Bestu deildinni á liðnu tímabili og verður því í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Hjörvar spilaði meirihluta leikja ÍBV 2024 þegar liðið fór upp úr Lengjudeildinni en var í hlutverki varamarkmanns tímabilið eftir.

Stjarnan, Breiðablik, HK og KA höfðu samkvæmt heimildum Fótbolta.net sýnt Hjörvari áhuga.

ÍBV
Komnir
Hjörvar Daði Arnarsson frá Grindavík
Þorri Heiðar Bergmann frá ÍR (var á láni)
Arnar Breki Gunnarsson frá Grindavík (var á láni)
Þórður Örn Gunnarsson frá Sindra (var á láni)

Farnir
Omar Sowe í KR
Sigurður Arnar Magnússon í Val
Bjarki Björn Gunnarsson
Ari i Haraldstovu Petersen í KÍ (var á láni)
Róbert Elís Hlynsson í KR (var á láni)
Aron Lucas Vokes í Selfoss (var á láni)

Samningslausir
Ivan Vidrih
Pisco
Mattias Edeland
Hjörvar aftur til Eyja (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.