11.10.26 - 10:43
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Arsenal aftur á meiðslalistann

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ekvadorinn Piero Hincapie er kominn aftur á meiðslalistann hjá Arsenal.
Hincapie glímdi við meiðsli fyrir landsleikjahléið en var aftur kominn á bekkinn gegn Leeds í gær. Hann spilaði síðustu tíu mínúturnar en gekk sárkvalinn af velli eftir lokaflautið.
Hann fer nú í frekari rannsóknir og myndatöku til að kanna ástand liðbands í ökkla. Þetta eru slæmar fréttir fyrir Arsenal sem mætir Lille í Meistaradeildinni í vikunni.
Hincapie hafði komið við sögu í fjórum leikjum fram að leiknum í gær, en aðeins leikið um 160 mínútur.
Fjarvera hans myndi auka álagið á Riccardo Calafiori sem hefur verið fastamaður í vinstri bakverðinum. Myles Lewis-Skelly þekkir þó stöðuna vel og gæti leyst hann af.