Fotbolti.net
11.10.26 - 12:20
Brynjar Ingi Erluson

„Þessi heimskulega Þjóðadeild er brandari ársins“

Uli Hoeness

Uli Hoeness

Canon

Mynd: EPA

Uli Hoeness, heiðursforseti Bayern München, lætur UEFA heyra það eftir 2-2 jafntefli Bæjara við Augsburg í þýsku deildinni í gær.
Þýskaland: Skoraði fljótasta mark sögunnar eftir skelfileg mistök Neuer
TENGT EFNI

Þýskaland: Skoraði fljótasta mark sögunnar eftir skelfileg mistök Neuer

Hoeness gagnrýnir UEFA harðlega fyrir skipulag landsleikjanna og segir fáránlegt að Þjóðadeildin fari fram svo skömmu eftir HM.

Hann segir hléið gera félögunum erfitt fyrir að ná takti og sér lítinn tilgang með keppninni.

„Við verðum einna verst úti eftir þetta langa heimsmeistaramót því leikmenn okkar komu mjög seint til baka og þurftu svo að fara í frí.“

„Það er algjör katastrófa hjá UEFA að setja inn tveggja vikna landsleikjahlé aðeins fjórum vikum eftir að þýska deildin hófst. Átján leikmenn voru á ferðinni með landsliðum sínum og því fullkomlega eðlilegt að við skyldum missa taktinn.“

„Við þurfum að standa með félaginu. Það eru félögin sem borga leikmönnum laun, ekki landsliðin. Að halda svona heimskulega keppni eins og Þjóðadeildina er brandari ársins,“
sagði Hoeness.

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern8+1918
2Dortmund8+818
3Freiburg8+816
4RB Leipzig8+1115
5Werder8+315
6Leverkusen8+213
7Elversberg8013
8Frankfurt8-511
9Mainz8010
10Augsburg8+39
11Stuttgart8-19
12Hoffenheim8-29
13Köln8-39
14Paderborn8-39
15Hamburger8-129
16Union Berlin8-127
17Schalke 048-56
18Gladbach8-114
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.