Fotbolti.net
11.10.26 - 09:54
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham ætlar ekki að reka De Zerbi

Tottenham ætlar ekki að reka De Zerbi
Canon

Mynd: EPA

Tottenham Hotspur hefur engin áform um að láta ítalska stjórann Roberto De Zerbi taka pokann sinn.
De Zerbi tók við Tottenham undir lok síðasta tímabils og bjargaði liðinu frá falli. Hann styrkti hópinn í sumar en byrjunin hefur verið erfið og Tottenham er enn án sigurs eftir sex umferðir.

Liðið er með þrjú stig eftir að Dominic Solanke bjargaði 1-1 jafntefli gegn Manchester United með marki í uppbótartíma í gær. Tottenham var þá manni færri.

Samkvæmt TeamTalk er starf De Zerbi þó ekki í hættu og félagið hefur engin áform um stjóraskipti. Hann nýtur fulls trausts og hjá félaginu er talið að leikmenn þurfi meiri tíma saman eftir kaup sumarsins og að gengið muni batna á næstunni.

Tottenham er í 18. sæti, aðeins einu stigi á undan botnliði Fulham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.