Fotbolti.net
11.11.16 - 14:48
Elvar Geir Magnússon

Hannes: Búnir að bíða eftir þessum leik í mánuð

Auglýsing
Hannes á æfingu í Parma í vikunni.

Hannes á æfingu í Parma í vikunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Icelandair
„Þetta er heldur betur stór og mikill leikur. Við erum búnir að bíða eftir þessum leik núna í mánuð og erum tilbúnir í þetta,\" segir landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson um leikinn gegn Króötum á morgun.
Íslenska liðið æfði í dag á Maksimir leikvanginum en liðið tapaði 2-0 þar gegn Króötum í umspili um sæti á HM árið 2013.

„Það er ekkert hægt að neita því að það eru ekkert sérstakar minningar sem fylgja þessum velli. En nú er um að gera að snúa því við og fara héðan með nýjar og góðar minningar í farteskinu.\"

Hannes segir að leikurinn á morgun sé öðruvísi en fyrir þremur árum enda aðrar kringumstæður.

„Spennustigið er aðeins öðruvísi. Mér finnst við vera miklu betur undirbúnir núna og það er hugur í mannskapnum þó það hafi auðvitað verið síðast líka. Við erum reynslunni ríkari, búnir að ganga í gegnum mjög margt á þessum tveimur árum.\"

„Við vitum að við erum að fara í leik á móti frábæru liði og það þarf mjög margt að ganga upp fyrir okkur til þess að við náum í góð úrslit. En við mætum eins vel undirbúnir til leiks og hægt er, og svo reynum við að ná fram okkar besta - það á að geta skilað einhverju.\"


Hvernig leik býst Hannes við að sjá á morgun? „Svona miðað við hvernig lið þeir eru með þá er mjög líklegt að þeir muni halda boltanum mjög mikið og reyna að sýna þolinmæði og prjóna sig í gegnum okkur. Við þurfum að verjast vel eins og við höfum gert hingað til og nýta sénsana þegar við fáum \'breikin\' okkar og vonandi fá nokkur löng innköst hátt á vellinum til að gera eitthvað úr því. Þeir verða mikið með boltann og við þurfum að verjast.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Hannes: Búnir að bíða eftir þessum leik í mánuð
Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.