Fotbolti.net
12.01.26 - 15:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Júlíus Mar mættur til Noregs og búinn í læknisskoðun

Júlíus með umboðsmönnunum Kjartani Henry Finnbogasyni og Ólafi Garðarssyni.

Júlíus með umboðsmönnunum Kjartani Henry Finnbogasyni og Ólafi Garðarssyni.

Canon

Mynd: Aðsend

Á fimmtudag var geint frá því að Kristiansund og KR væru búin að ná samkomulagi sín á milli um kaup norska félagsins á U21 landsliðsmanninum.

Í tilkynningu norska félagsins kom fram að leikmaðurinn ætti eftir að fara í læknisskoðun. Hann flaug til Noregs í gær, er búinn með læknisskoðunina og tók þátt í sinni fyrstu æfingu með nýju liði í dag.
Július Mar til Kristiansund (Staðfest) - „Getur þróast í alvöru prófíl í Eliteserien"
TENGT EFNI

Július Mar til Kristiansund (Staðfest) - „Getur þróast í alvöru prófíl í Eliteserien"

Júlíus, sem er 21 árs miðvörður, var í eitt tímabil hjá KR eftir að hafa verið keyptur frá uppeldisfélaginu Fjölni. Fjallað hefur verið um að kaupverðið á honum sé rúmlega 150 þúsund evrur.

Hrannar Snær Magnússon, sem Kristiansund fékk frá Aftureldingu i síðasta mánuði, fór einnig til Noregs í gær en hann og Júlíus verða liðsfélagar í norsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Í spilaranum hér að neðan er hægt að hlusta á viðtal við Hrannar og Júlíus en þeir voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag.

Útvarpsþátturinn - Nýjustu sambýlismennirnir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.