Fotbolti.net
12.02.21 - 14:00
Magnús Már Einarsson

James Justin lengi frá keppni

James Justin lengi frá keppni
Canon

Mynd: Getty Images

James Justin, bakvörður Leicester, verður líklega frá út tímabilið eftir að hafa meiðst illa á hné í bikarleik gegn Brighton í vikunni.

Brendan Rodgers, stjóri Leicester, staðfesti þetta á fréttamannafundi í dag.

Hinn 22 ára gamli Justin meiddist illa á krossbandi í hné. Krossbandið slitnaði ekki en hins vegar er ljóst að Justin verður frá í nokkra mánuði.
Þetta er mikið áfall fyrir Leicester en Justin hefur spilað hverja einustu mínútu með liðinu í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Leicester fær Liverpool í heimsókn í hádeginu á morgun í mikilvægum leik í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.