„Andskotinn hafi það ef menn geta ekki hagað sér eftir þetta"

Ég fullvissa fólk um að þetta mun aldrei koma fyrir aftur, ekki á minni vakt

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

'Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu, ekki flóknara en það'

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Agabrotið átti sér stað eftir heimaleikinn gegn Búlgaríu í síðasta mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég fullvissa fólk um að þetta mun aldrei koma fyrir aftur, ekki á minni vakt

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar hafði gefið það út að engum yrði refsa með því að vera ekki í hópnum og hann stóð við það. Einu breytingarnar frá síðasta verkefni voru vegna meiðsla leikmanna.
En hér má lesa hvað spurningar Arnar fékk og hverju hann svaraði.

Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum
„Nei, ekki beint herða reglur. Það er búið að gera upp ákveðið leiðindamál sem kom upp í síðasta glugga. Ég sé ekki ástæðu til að hengja upp á vegg einhvern reglulista. Strákarnir vita þetta, og andskotinn hafi það ef menn geta ekki hagað sér eftir það sem undan hefur gengið, þá er bara eitthvað mikið af, ekkert sem einhverjar reglur myndu bjarga. Við munum minna strákana á hver ábyrgð okkar er og hvað við ætlum að gera í þessum glugga."
„Það fylgir því ákveðinn veikleiki að gera það (að setja ákveðnar reglur), þá þarftu alltaf að fylgja einhverjum ákveðnum reglum. Og hvar endar þetta? Hópurinn veit hvað hann er að gera hérna og að hverju við göngum í þessum glugga. Þeir vita það líka í sínu lífi sem atvinnumenn. Ég veit að þetta mál er að baki, þetta var tæklað vel af leikmönnum, þjálfarateymi og stjórn KSÍ og öllum sem að þessu koma."
„Þetta er ekki gleymt, ég skil alveg áhyggjur stuðningsmanna og skil áhyggjur allra að þetta muni kannski koma fyrir aftur, en ég fullvissa fólk um að þetta mun aldrei koma fyrir aftur, ekki á minni vakt."
Það var mikið talað um hvort það ætti að nafngreina leikmenn og hvort leikmenn sem áttu í hlut myndu stíga fram. Hafa leikmenn sem áttu ekki í hlut lýst yfir vonbrigðum með að menn hafi ekki stigið fram eða verið nafngreindir?
„Ekki við mig persónulega. En eins og ég sagði í viðtalinu við Sýn, þá væri mjög heimskt að áætla að í svona stórum hópi séu ekki einn eða tveir sem væru ósáttir með hvernig tekið var á málum. Enginn leikmaður hefur sagt það við mig. Mér fannst hópurinn taka mjög vel á þessu, fannst fyrirliðinn okkar stíga mjög vel upp, ungur fyrirliði. Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu, ekki flóknara en það. Ég talaði líka mikið við eldri leikmenn og menn voru ánægðir með hvernig hópurinn dílaði við þetta."
Arnar segir að mögulega sé einhver óánægja sem fari fram í einkasamtölum en hann geti ekki leyft sér að hugsa út í það.
„Hópurinn var flottur og ég trúi því að hann komi til baka sterkari fyrir vikið, menn komi hungraðir í að klára þetta verkefni. Við erum á toppnum í riðlum, þetta var að mörgu leyti flottur gluggi," sagði Arnar sem benti einnig á árangur yngri landsliða og kvennalandsliðsins. „Þetta mál setti skugga á margt sem var gert ógeðslega vel í þessum glugga og það var miður. Því miður náðum við ekki að stjórna því nægilega vel."
Voru allir sammála um hvernig ætti að tækla þetta mál, innan teymisins og KSÍ?
„Ég held að allir innan KSÍ viti alveg hvað handbókin segir. Fyrst þegar þetta kemur upp þá vilja menn blóð. Það er mannleg hegðun að fara í hefndargír og ert rosa reiður. En það býr miklu meira að baki en bara að leikmenn séu einhverjir prakkarar. Við tókum þann í hæðina að fara frekar í mannlega þáttinn; leiðbeina og tala við leikmenn og finna fyrir hvort þeir séu fullir af iðrun og hvernig þeir vilja hafa framhaldið á sínum ferli og sínu lífi. Eftir þessi 1 á 1 samtöl, og hvernig hópurinn tæklaði þetta, þá var augljóst að lausnin var ekki að reka menn heim með skömm."
„Þið verðið að treysta mér fyrir því hvernig við, þjálfarar, leikmenn og stjórn, tækluðum þetta. Það átti ekki við í þessu tilviki (að senda menn heim). Maður les svo fréttir hjá Jack Grealish hjá Everton og fleiri mál, það koma alltaf upp mál í ákveðnum hópum. Það kom upp mál á gullaldarárunum hjá okkur, gerist alltaf þar sem hópar eru saman komnir."
„Við tækluðum þetta mál og nú er það frá. Áhyggjur fólks og þessar spurningar eiga fullkomlega rétt á sér, ég skil þær fullkomlega. En við erum mjög sáttir við útkomuna og mögulega, eins asnalega og það hljómar, gerðist þetta á mjög góðum tímapunkti fyrir þessa viðkomandi leikmenn, þeir geti aðeins andað með nefinu og gert sér grein fyrir því hversu stórt þetta er fyrir þeirra feril. Ef þeir tækla þetta rétt þá er þetta öllum til framdráttar."
Hvenær tókstu þá ákvörðun að allir fengju að vera með hreint blað?
„Það var strax á mánudeginum um leið og við ákváðum liðið fyrir leikinn gegn Eistlandi á þriðjudeginum, þetta kom upp á sunnudeginum. Ég trúi ekki á að líta í baksýnisspegilinn og vera fullur eftirsjár með ákvörðun sem maður tekur. Um leið og ákvörðun eru tekin og allir eru á bakvið þá ákvörðun þá þarf að róa í sömu átt. Þetta hafði engin áhrif á val í þessum hóp eins og þið hafið tekið eftir," sagði Arnar.

'Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu, ekki flóknara en það'

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Agabrotið átti sér stað eftir heimaleikinn gegn Búlgaríu í síðasta mánuði.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KSÍ

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



